Calpe er staðsett í um klukkutíma akstursfjarlægð frá Alicante. Gaman Ferðir bjóða uppá fjölbreytta gistimöguleika í Calpe hvort sem leitað er eftir hóteli eða íbúðagistingu. í gamla hluta Calpe eru verslanir og veitingastaðir. Við Calpe er eitt helsta einkenni Costa Blanca strandarinnar kletturinn El Pnon de Ifach eða Gíbraltar norðursins eins og hann er oftast kallaður. Í Calpe er eitthvað að finna fyrir alla, menning, mannlíf, strandlíf, mikil matar og vínmenning auk þess er mikil veður sæld í Calpe. Fjöldi skemmtigarða og aðra afþreyingu er að finna á Benidorm og í nágrenni um 30 km akstur er frá Calpe til Benidorm, má þar nefna Teerra Mitica skemmtigarðinn, Aqualandia, Mundomar og Terra Natura.
Gaman að gera í Calpe
-
Prútta á markaðinum í Calpe sem haldinn er á miðvikudögum og laugardögum
-
Skella sér til Benidorm og fara í allar vatnsrennibrautirnar í Aqualandia
-
Leigja sér sjókött eða fara á bananabát